'Princess Alexandra of Kent'
Nútíma runnarósir (Modern Shrub)
Uppruni
David Austin, Bretlandi, 2002
Hæð
um 60 cm
Blómlitur
bleikur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - september
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
getur þrifist vel við rétt skilyrði
Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir. Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður. Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér. Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.
Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir. Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning. Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 4b
Nútíma runnarós frá David Austin með stórum, þéttfylltum, bleikum blómum. Hún þarf sólríkan vaxtarstað í góðu skjóli og vetrarskýlingu.