'Tertin Kartano'
Bjarmarósir (Alba)
Uppruni
finnsk fundrós sem fannst í Tertin Kartano í Finnlandi
óþekkt
Hæð
um 60 - 150 cm
Blómlitur
fölbleikur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
einblómstrandi, júlí - ágúst
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grágrænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, RHF2
Bjarmarósir eru afkomendur bjarmarósar, Rosa alba. Flestar með mikið fyllt blóm, bleikar eða hvítar með grágrænu laufi og mjög sterkum ilmi. Þær voru mikið ræktaðar á 19. öld. Bjarmarósir þrífast vel hérlendis í góðu skjóli. Þær þola skugga part úr degi.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
Bjarmarós með fylltum, fölbleikum blómum. Eins og flestar aðrar antíkrósir blómstrar hún á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Kelur ekki mikið í góðu skjóli og blómgun því nokkuð örugg.
Finnsk fundrós sem fannst á herragarðinum Tertin Kartano í finnska vatnahéraðinu. Hún hefur verið greind sem 'Maiden's Blush', en sú greining er ekki óumdeild.