'Glory of Edzell'
sh. 'Glory of Edsell'
Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)
Uppruni
óþekktur
Hæð
1,5 - 2 m
Blómlitur
dökkbleikur með kremhvítri miðju
Blómgerð
einföld
Blómgun
einblómstrandi, júní - ágúst
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, RHF2
Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm. Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm. Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 6b
Skandínavíski kvarði: H6
Þyrnirósarblendingur með einföldum, bleikum blómum með kremhvítri miðju. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Þrífst best í sól og sendnum, vel framræstum jarðvegi. Blómin eru regnþolin.
Uppruni er óþekktur, en hún er talin vera blendingur af Rosa x reversa, sem er náttúrulegur blendingur þyrnirósar og fjallarósar (Rosa pimpinellifolia x pendulina).
"Harðgerð skosk þyrnirós. Blómstrar mikið um Jónsmessu ilmandi blómum. Er um 2.m.á hæð. H.2.Ísl."
-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009