'Huldra'
Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)
Origin
Nilsson, Noregi, fyrir 2009
'Poppius' × eplarós (Rosa rubiginosa)
Height
1 - 2 m
Flower color
fölbleikur
Flower arrangement
hálffyllt
Flowering
einblómstrandi, júní - ágúst
Fragrance
meðalsterkur
The age
-
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól
Soil
vel framræstur, sendinn
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
takmörkuð reynsla
Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm. Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm. Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.
Foreign hardness scales:
Skandínavíski kvarði: H6
Þyrnirósarblendingur með hálffylltum, fölbleikum blómum. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Þrífst best í sól og sendnum, vel framræstum jarðvegi.
Huldra er norsk þjóðsagnavera, einskonar huldukona, sem býr í skógum og tælir unga karlmenn með fögrum söng og hörpuleik.
"Finnsk blendingsrós, óreynd, sýnist efnileg að áliðnum fyrsta vetri úti. Ilmar mikið, blómstrar í júní, ekki vitað um hæð eða harðgerði ennþá."
-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009