'Kerisalo'
Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)
Uppruni
óþekktur, finnsk fundrós
Hæð
1,5 - 2 m
Blómlitur
fölbleikur
Blómgerð
hálffyllt
Blómgun
einblómstrandi, júní - ágúst
Ilmur
daufur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, sendinn
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
takmörkuð reynsla
Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm. Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm. Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
Finnski kvarði: I-IV
Þyrnirósarblendingur með hálffylltum, fölbleikum blómum. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Þrífst best í sól og sendnum, vel framræstum jarðvegi. Þetta er finnsk fundrós sem fannst í Kerisalo, Joroinen í Austur-Finnlandi.
"Óreynd finnsk Þyrnirósasort, blóm í júnílok, ilmar lítið. Er sögð mjög harðgerð í Finnlandi."
-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009