'Ruskela'
Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)
Origin
óþekktur, finnsk fundrós, 1997
Height
1 - 1,5 m
Flower color
ljósbleikur
Flower arrangement
hálffyllt
Flowering
einblómstrandi, júní - júlí
Fragrance
sterkur
The age
-
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól
Soil
sendinn, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
nokkuð harðgerð, líklega RHF2
Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm. Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm. Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.
Foreign hardness scales:
USDA zone: 6b
Skandínavíski kvarði: H6
Þyrnirósarblendingur með hálffylltum, ljósbleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Blómgast á eldri greinar svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa burt kal og gamlar greinar.
"Harðgerð finnsk þyrnirós, blómstrar mikið í júlí,ilmandi blómum, verður um 2 m á hæð. H.2.Ísl"
-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbær, 2009