'William III'
Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)
Uppruni
óþekktur, fyrir 1850
Hæð
50 - 80 cm
Blómlitur
purpurableikur
Blómgerð
hálffylltur
Blómgun
einblómstrandi, júní - ágúst
Ilmur
meðalsterkur
Aldin
svartar nýpur
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
sendinn, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
takmörkuð reynsla
Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm. Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm. Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 3b
Skandínavíski kvarði: H8
Þyrnirósarblendingur með hálffylltum, purpurableikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Blómstrar á eldri greinar og snyrting ætti því að takmarkast við að klippa burt kal og gamlar greinar.
"Lágvaxinn skoskur þyrnirósarblendingur. Óreyndur, ilmur lítill, blóm snemma í júlí."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009