'Agnes'
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Uppruni
Saunders, Kanada, fyrir 1902
ígulrós (Rosa rugosa) x gullrós (Rosa foetida) 'Persiana'
Hæð
um 1,5 m
Blómlitur
gulur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - ágúst
Ilmur
daufur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
þarf gott skjól, líklega RHF3
Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 3a
Skandínavíski kvarði: H6
Ígulrósarblendingur með fylltum, gulum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.
"Nokkuð harðgerð rós í skjóli. Blómstrar snemma í júlí 1,5.m á hæð, ilmar mikið. H.3.Ísl."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009