'Charles Albanel'
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Uppruni
Svejda, Kanada, 1970
'Souvenir de Philemon Cochet' op. op. (óþekktur frjógjafi)
Hæð
um 1,5 m
Blómlitur
dökkbleikur
Blómgerð
hálffyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - ágúst
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, líklega RHF2
Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 2b
Skandínavíski kvarði: H6
Ígulrósarblendingur með hálffylltum, bleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar. Hún er sögð mjög harðgerð og laus við sjúkdóma.
Þetta er ein af þeim rósum sem tilheyra kanadísku Explorer-seríunni. Charles Albanel var franskur trúboði og landkönnuður sem leiddi könnunarleiðangur landleiðina frá St. Lawrence á að Hudson flóa.
Explorer-serían er afrakstur ræktunarverkefnis á vegum kanadíska landbúnaðarráðuneytisins sem miðaði að því að rækta fram harðgerðar, heilbrigðar rósir sem þola kanadískar frosthörkur. Dr. Felicitas Svejdas hafði umsjón með verkefninu og ræktaði hún fram fjölda harðgerðra rósa á árunum 1961-1999, sem margar hafa reynst afar vel hér á landi.
"Harðgerð Kanadisk Ígulrós ilmar mikið blómstrar í júlí 1.5 m. á hæð H.2. Ísl."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009