'Hansaland'
sh. 'Charles Notcutt' (Bretland, 1998)
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Uppruni
Kordes & synir, Þýskalandi, 1993
Hæð
um 1 m
Blómlitur
rauður
Blómgerð
fyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - september
Ilmur
daufur - meðalsterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
þarf gott skjól, RHF3
Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 6b
Skandínavíski kvarði: H5
Ígulrósarblendingur með fylltum, rauðuðm blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.
"Harðgerður Ígulrósarblendingur blómstrar mikið í júlí og aftur í ágústlok . Er um rúmur meter á hæð. H.3. Ilmar mikið."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009