'Schnee Eule'
sh. 'Snow Owl' ; 'White Pavement'
Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)
Uppruni
Jürgen Walter Uhl, Þýskalandi, 1989
Hæð
um 1,5 - 1,8 m
Blómlitur
hvítur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - september
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
takmörkuð reynsla, mögulega RHF2
Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur. Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.
Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum. Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 3b
Ígulrósarblendingur með fylltum, hvítum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar.
"Þýsk Rósa Rugósa, er mikil og stór í Grasagarðinum í Laugardal hæð 1.8. m H.2 Ísl. Blómstrar í júlí og ilmar mikið."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009