Agastache foeniculum
Agastache anisata
Ilmexir
Varablómaætt
Lamiaceae
Hæð
meðalhár, um 30-40 cm
Blómlitur
fjólublár
Blómgun
júlí - ágúst
Lauflitur
gulgrænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust- basískt
Harðgerði
frekar viðkvæmur
Heimkynni
N-Ameríka norður til Kanada.
Agastache er ættkvísl fjölærra jurta í varablómaætt, Lamiaceae, með ilmandi lauf og blóm í löngum klösum. Í ættkvíslinni eru 22 tegundir sem allar eiga heimkynni í N-Ameríku, utan ein sem á heimkynni í A-Asíu. Þetta eru vinsælar garðplöntur á suðlægari slóðum þar sem þær eru vinsæl fæðuuppspretta fyrir fiðrildi og kólíbrífugla, og er fjöldi yrkja í ræktun. Þær eru helst til viðkvæmar hér.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að vori.
Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.
Lágvaxin planta með smá, fjólublá blóm, sem hafa takmarkað fegurðargildi. Tegundir þessarar ættkvíslar eru helst ræktaður vegna þess að blómin laða að býflugur og fiðrildi. Hefur því lítið gildi
sem garðplanta hérlendis. Bæði blóm og lauf hafa anískeim.