top of page
Mýrastigi

Aquilegia jonesii

Kalkvatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

lágvaxinn, um 5-10 cm

Blómlitur

blár

Blómgun

júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, kalkríkur, grýttur

pH

hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

Klettafjöll

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning – fræ spírar hægt og við lágt hitastig, best sáð að hausti eða síðvetrar.

Fræ ekki hulið og sett út fram að spírun. Spírun getur verið hæg, fræ gæti spírað ári síðar og því mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma.

Mjög fíngerð fjallaplanta sem fer vel í steinhæð eða steinhleðslu. Vex í kalksteinsskriðum og klettasprungum í Klettafjöllunum í N-Ameríku. Hann þarf því sólríkan stað og vel framræstan jarðveg. Harðgerður.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page