top of page
Mýrastigi

Aquilegia x hybrida 'McKana's Giants'

Garðavatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Height

hávaxinn, um 80 - 90 cm

Flower color

tvílitur í ýmsum litum

Flowering

júní - júlí

Leaf color

grænn

Lighting conditions

sól - hálfskuggi

Soil

vel framræstur, frjór

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Toughness

harðgerður

Homecoming

garðaafbrigði

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning - sáð að vori.

Fræ varla hulið og haft við stofuhita (ca. 15-20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Mjög fallegt garðaafbrigði með stórum tvílitum blómum í ýmsum litum. Þrífst best í sól eða hálfskugga í vel framræstum, frjóum jarðvegi.

Do you have a photo or experience with this plant?

You can share photos and experiences here.

bottom of page