![]() |
---|
Campanula medium
Sumarklukka
Bláklukkuætt
Campanulaceae
Hæð
hávaxin, um 60-90 cm
Blómlitur
ýmis litbrigði í bláum, fjólubláum, bleikum og hvítum tónum
Blómgun
tvíær, lok júlí - ágúst á öðru ári
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
næringarríkur, vel framræstur, frekar rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerð
Heimkynni
S-Evrópa
Ættkvíslin Campanula, bláklukkur, er stærsta ættkvísl bláklukkuættarinnar, Campanulaceae, með yfir 500 tegundum sem dreifast um norðurhvel jarðar, flestar við Miðjarðarhaf og austur til Kákasus. Tegundir ættkvíslarinnar eru mjög fjölbreyttar frá lágvöxnum háfjallaplöntum, til stórvaxinna engja og skógarplantna. Tvær tegundir, bláklukka og fjallabláklukka, vaxa villtar á Íslandi.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að vori.
Fræ ekki hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.
Tvíær planta sem blómstrar á öðru ári. Er stundum seld sem sumarblóm. Hávaxin , með stóra, þunga blómklasa, svo hún þarf stuðning.