![]() |
---|
Centaurea dealbata
Silfurkornblóm
Körfublómaætt
Asteraceae
Hæð
hávaxið, 80 - 100 cm
Blómlitur
purpurableikur
Blómgun
lok ágúst - september
Lauflitur
grænn, silfraður á neðra borði
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, rýr
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgert
Heimkynni
Kákasus
Kornblóm, Centaurea, er stór ættkvísl um 350 - 600 tegunda í körfublómaætt, Asteraceae. Tegundir ættkvíslarinnar vaxa eingöngu á norðurhveli, flestar í Miðausturlöndum. Einkenni ættkvíslarinnar eru blómkollar sem samsettir eru úr frjóum pípukrónum í miðju og ófrjóum reifarblöðum í kring.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að vori.
Fræ ekki hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.
Hávaxin planta sem myndar breiðan brúsk af grænu, fjaðurskiptu laufi sem er silfrað á neðra borði með purpurableikum blómum. Það þarf stuðning annars leggst allur brúskurinn niður. Það þarf sólríkan stað og vex best í vel framræstum, frekar rýrum jarðvegi. Það er mjög þurrkþolið, en þolir illa blautan jarðveg.