Delphinium x cultorum 'Percival'
Riddaraspori
Sóleyjaætt
Ranunculaceae
Hæð
hávaxinn, um 150-180 cm
Blómlitur
hvítur
Blómgun
júlí - ágúst
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
næringarríkur, vel framræstur, lífefnaríkur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerður
Heimkynni
garðaafbrigði
Riddarasporar, Delphinium, er fjölskúðug ættkvísl í sóleyjaætt, Ranunculaceae, með um 300 tegundum. Flestar eru tignarlegir fjölæringar með heimkynni um norðanvert tempraða beltið og suður til fjalla Afríku. Mest er ræktað af kynbættum yrkjum í görðum.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að vori.
Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 22°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.
Sort ræktuð af fræi frá Thompson & Morgan með hreinhvítum blómum með svartri miðju. Þarf gott skjól og stuðning. Tilheyrir Pacific Giants blendingahópnum.