Dianthus microlepis
Álfadrottning
Hjartagrasaætt
Caryophyllaceae
Hæð
lágvaxin, um 5 cm
Blómlitur
bleikur
Blómgun
maí - júní
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, blandaður grófri möl, kalksnauður
pH
veik súrt - hlutlaust
Harðgerði
frekar viðkvæm, þolir illa vetrarbleytu
Heimkynni
fjalllendi í Búlgaríu
Dianthus, drottningablóm, er stór ættkvísl í hjartagrasaætt, Caryophyllaceae, með um 300 tegundum sem flestar eiga heimkynni við Miðjarðarhafið, norður eftir Evrópu og austur til Asíu. Flestar mynda lága brúska eða breiður og vaxa best í þurrum, grýttum jarðvegi á sólríkum stað og henta því vel í steinhæðir.
Fjölgun:
Sumargræðlingar.
Blómlaus stilkur rifinn frá alveg niður við jörð og stungið í vikurblandaða pottamold. Haldið röku á skýldum stað, ekki í sterkri sól þar til græðlingurinn hefur rótað sig.
Sáning - sáð að vori.
Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.
Myndar þétta þúfu sem blómin rétt standa upp úr. Þrífst best í kalksnauðum jarðvegi.