Douglasia vitaliana
viðurkennt heiti: Vitaliana primuliflora
Glófeldur
Maríulykilsætt
Primulaceae
Height
jarðlægur, 5 cm
Flower color
gulur
Flowering
maí
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól
Soil
vel framræstur, blandaður vikri eða möl
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
þrífst þokkalega ef frárennsli er gott
Homecoming
Alpar, Pýreneafjöll og önnur fjöll í Evrópu
Douglasia, feldir, er lítil ættkvísl háfjallaplantna í maríulykilsætt, Primulaceae, nákskyldum berglyklum, Androsace. Þær eiga heimkynni í NV-Ameríku og NA-Asíu og eins og aðrar háfjallplöntur kunna þær best við sig í grýttum jarðvegi á sólríkum stað.
Fjölgun:
Græðlingar snemmsumars.
Blómlaus stilkur rifinn frá alveg niður við jörð og stungið í vikurblandaða pottamold. Haldið röku á skýldum stað, ekki í sterkri sól þar til græðlingurinn hefur rótað sig.
Sáning - þarf kaldörvun, best sáð að hausti. Fræ hefur stutt geymsluþol.
Fræ rétt hulið og haft í 6 vikur við stofuhita. Ef eitthvað af fræinu spírar, er því dreifplantað og svo er best að setja sáninguna út fram á vor. Spírun getur verið hæg, fræ gæti spírað ári síðar og því mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma. Spírar best við 5-12°C.
Glófeldur tilheyrði áður ættkvíslinni Douglasia, en hefur nú verið færður í ættkvíslina Vitaliana og er eina tegund þeirrar ættkvíslar. Viðkvæmur fyrir vetrableytu.