Gentiana dahurica
Tígulvöndur
Maríuvandarætt
Gentianaceae
Hæð
lágvaxin, um 20 - 30 cm á hæð.
Blómlitur
blár
Blómgun
lok ágúst - september
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, lífefnaríkur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
virðist nokkuð harðgerður
Heimkynni
Mongólía og Kína
Maríuvendir, Gentiana, er stór ættkvísl um 400 tegunda í maríuvandaætt, Gentianaceae. Hún dreifist um fjalllendi og tempruð belti Evrópu, Asíu og Ameríku. Eitt aðaleinkenni ættkvíslarinnar eru stór tregtlaga blóm og margar tegundir skarta einstaklega skærbláum blómum.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að hausti eða síðvetrar
Fræ rétt hulið og haft við stofuhita í 2-4 vikur og síðan sett út fram að spírun. Spírun getur verið hæg og fræ gæti spírað ári síðar. Fræplöntur ætti ekki að dreifplanta einni í einu, heldur nokkrum saman.
Mongólía og Kína