top of page
Gentiana dinarica
Glæsivöndur
Maríuvandarætt
Gentianaceae
Hæð
lágvaxin, um 5 - 10 cm
Blómlitur
blár
Blómgun
lok maí - júní
Lauflitur
ljósgrænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, kalkríkur
pH
basískt
Harðgerði
harðgerður, en frekar tregur til að blómstra
Heimkynni
fjöll á Balkanskaga og Ítalíu
Maríuvendir, Gentiana, er stór ættkvísl um 400 tegunda í maríuvandaætt, Gentianaceae. Hún dreifist um fjalllendi og tempruð belti Evrópu, Asíu og Ameríku. Eitt aðaleinkenni ættkvíslarinnar eru stór tregtlaga blóm og margar tegundir skarta einstaklega skærbláum blómum.
Fjölgun:
Sáning - sáð að hausti eða síðvetrar.
Fræ rétt hulið og haft við stofuhita í 2-4 vikur og síðan sett út fram að spírun. Spírar best við 5-12°C.
Harðgerður en tregur til að blómstra. Kýs kalkríkan jarðveg.
bottom of page