top of page
Geranium sanguineum 'Elsbeth'
Blóðgresi
Blágresisætt
Geraniaceae
Hæð
lágvaxið, um 10 - 15 cm
Blómlitur
fjólurauður
Blómgun
ágúst - september
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
þokkalega harðgert
Heimkynni
Evrópa og tempraða belti Asíu
Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að hausti eða vetri.
Fræ hulið og haft úti fram að spírun.
Mjög smávaxið afbrigði af blóðgresi, þarf að passa að það verði ekki undir gróskumeiri plöntum.
bottom of page