top of page
Heuchera 'Emperor's New Clothes'
Roðablóm
Steinbrjótsætt
Saxifragaceae
Hæð
lágvaxið, um 20 cm
Blómlitur
hvítur
Blómgun
seinnipart ágúst - september
Lauflitur
purpurarauður eða grænn
Birtuskilyrði
hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur, rakur, frjór, lífefnaríkur
pH
hlutlaust
Harðgerði
harðgert
Heimkynni
garðaafbrigði
Heuchera, roðablóm, er ættkvísl um 30 tegunda í steinbrjótsætt, Saxifragaceae, sem allar eiga heimkynni í N-Ameríku. Einkenni þeirra er hvirfing laufblaða sem oft eru fagurlituð og klasar smárra, klukkulaga blóma. Mikill fjöldi yrkja er ræktaður í görðum.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að vori.
Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun.
Blendingar með rauðleit eða græn laufblöð og lítilfjörleg blóm.
bottom of page