top of page
Hosta undulata 'Mediovariegata'
Bylgjubrúska
Aspasætt
Asparagaceae
Hæð
lágvaxin, 20 - 30 cm
Blómlitur
lillablár
Blómgun
ágúst - september
Lauflitur
grænn með hvítri miðju
Birtuskilyrði
hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur, frjór, lífefnaríkur, frekar rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
þrífst vel ef jarðvegur er ekki of þéttur
Heimkynni
garðaafbrigði
Brúskur, Hosta, er ættkvísl skuggþolinna jurta í aspasætt, Asparagaceae (áður liljuætt) sem ræktaðar eru fyrst og fremst vegna blaðfegurðar. Þær eiga heimkynni í NA-Asíu, flestar tegundir sem ræktaðar eru í görðum koma frá Japan.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Treg til að blómstra. Grænt, snúið lauf með hvítri miðju.
bottom of page