top of page
Lamium galeobdolon 'Variegatum'
Gulltvítönn
Varablómaætt
Lamiaceae
Hæð
meðalhá, 10-20 cm
Blómlitur
gulur
Blómgun
frá síðari hluta júní og frameftir sumri
Lauflitur
hvítmynstraður
Birtuskilyrði
hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur, frekar rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerð
Heimkynni
garðaafbrigði, tegundin vex villt víða um Evrópu og V-Asíu
Tvítennur, Lamium, er ættkvísl um 50 tegunda í varablómaætt, Lamiaceae, með heimkynni í Evrópu, Asíu og Afríku. Þær eru margar skriðular og skuggþolnar og því góðar þekjuplöntur á skuggsælum stöðum.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Ofanjarðarrenglur skjóta rótum og mynda nýjar plöntur sem hægt er að kljúfa frá móðurplöntunni.
Skuggþolin þekjuplanta. Hvítmynstrað lauf.
bottom of page