top of page
Lamium maculatum 'Litla Rún'
Dílatvítönn
Varablómaætt
Lamiaceae
Hæð
lágvaxin, um 30 cm
Blómlitur
ljósbleikur
Blómgun
frá síðari hluta júní og frameftir sumri
Lauflitur
grænn með silfraðri rák eftir miðju laufi
Birtuskilyrði
hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur, frekar rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerð
Heimkynni
garðaafbrigði, tegundin vex villt í Evrópu og tempruðum svæðum Asíu
Tvítennur, Lamium, er ættkvísl um 50 tegunda í varablómaætt, Lamiaceae, með heimkynni í Evrópu, Asíu og Afríku. Þær eru margar skriðular og skuggþolnar og því góðar þekjuplöntur á skuggsælum stöðum.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sveiggræðsla - stilkur hulinn mold þar sem ætlunin er að fá rætur og látinn ræta sig áður en hann er skilinn frá.
Sjálfsáður blendingur. Grænt lauf með silfraðri rák eftir miðju laufi.
bottom of page