Lewisia tweedyi
viðurkennt heiti: Lewisiopsis tweedyi
Rósablaðka
Montiaceae
Hæð
lágvaxin, 10 cm
Blómlitur
ferskjubleikur
Blómgun
lok júní - júlí
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, vikur eða malarblandaður
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
þolir illa vetrarbleytu, vetrarskýli
Heimkynni
vex í skriðum og klettum í Wenatchee-fjöllum í NV-Ameríku
Fjallablöðkur, Lewisia, er lítil ættkvísl 19 tegunda sem áður tilheyrðu grýtublómaætt, en eru nú flokkaðar í ættina Montiaceae. Þetta eru háfjallaplöntur sem allar vaxa í norðurhlíðum fjalla í vestanverðri N-Ameríku.
Fjölgun:
Sáning - sáð síðvetrar
Fræ rétt hulið og haft við stofuhita í 2-4 vikur og síðan haft í kæli eða úti í 4-6 vikur. Spírar best við 5-12°C.
Fjallaplanta sem þarf mjög gott frárennsli. Þrífst best í halla.