top of page
Lilium 'African Queen'
Trompetliljublendingur (Trumpet)
Skrautlilja
Liljuætt
Liliaceae
Hæð
mjög hávaxin, 120 cm, þarf stuðning
Blómlitur
appelsínugulur
Blómgun
seint í ágúst - september, nær ekki að blómstra á hverju sumri
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, vel framræstur
pH
hlutlaust - basískt
Harðgerði
þarf sólríkan, hlýjan vaxtarstað
Heimkynni
garðaafbrigði
Liljur, Lilium, er stór ættkvísl í liljuætt, Liliaceae, sem vex um nyrðra tempraða beltið, flestar í Asíu og N-Ameríku, en nokkrar í Evrópu. Þetta eru yfirleitt hávaxnar plöntur með stórum, litsterkum blómum í öllum litum regnabogans að bláum undanskildum. Mikill fjöldi yrkja er ræktaður í görðum.
Fjölgun:
Laukar að vori.
Mjög hávaxin, þarf stuðning. Blómstrar seint ~ nær ekki að blómstra á hverju sumri.
bottom of page