Primula involucrata
Harnarlykill
Maríulykilsætt
Primulaceae
Hæð
lágvaxinn, 15 - 25 cm
Blómlitur
hvítur
Blómgun
júní
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
frekar rakur
pH
súrt - hlutlaust
Harðgerði
harðgerður
Heimkynni
Himalajafjöll
Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.
Fjölgun:
Skipting að vori eða hausti.
Sáning - sáð síðvetrar.
Fræ ekki hulið og haft við stofuhita í 1-2 mánuði. Ef fræ hefur ekki spírað á þeim tíma, getur hjálpað að kæla fræið í mánuð og hafa það svo aftur við stofuhita fram að spírun.
Harðgerður, þrífst best í frekar rökum jarðvegi