Primula parryi
Gyðjulykill
Maríulykilsætt
Primulaceae
Hæð
lágvaxinn, um 30 cm
Blómlitur
purpurarauður
Blómgun
júní - júlí
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
vel framræstur, rakur, kalkríkur
pH
hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerður
Heimkynni
Klettafjöll
Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.
Fjölgun:
Skipting að vori eða hausti.
Sáning - sáð að hausti eða síðvetrar.
Fræ ekki hulið og haft úti fram að spírun.
Þrífst ágætlega. Getur verið tregur til að blómstra.