top of page
Mýrastigi

Primula vialii

Mongólalykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, 20 - 30 cm

Blómlitur

lillablár

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, rakur, vel framræstur

pH

aðeins súrt - hlutlaust

Harðgerði

yfirleitt frekar skammlífur

Heimkynni

Kína

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð síðvetrar eða að vori.

Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun.

Rauðir knúppar og lillablá blóm í margblóma klasa sem er tvílitur á meðan á blómgun stendur.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page