Primula waltonii
Völvulykill
Maríulykilsætt
Primulaceae
Hæð
lágvaxinn - meðalhár, 20 - 40 cm
Blómlitur
rauður, purpurarauður eða fjólublár
Blómgun
júní - júlí
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
rakur, vel framræstur, frjór, lífefnaríkur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerður
Heimkynni
Tíbet
Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.
Fjölgun:
Skipting að vori eða hausti.
Sáning - sáð síðvetrar eða að vori.
Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun.
Nokkuð harðgerð tegund sem tilheyrir kínalykilsdeild.