Primula x pruhoniciana 'Wanda'
Elínarlykill
Maríulykilsætt
Primulaceae
Hæð
lágvaxinn, 10 - 15 cm
Blómlitur
purpurarauður
Blómgun
byrjun apríl - maí
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
lífefnaríkur, frjór, rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust
Harðgerði
harðgerður
Heimkynni
garðaafbrigði
Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.
Fjölgun:
Skipting að vori eða hausti.
Elínarlykill er hópur blendinga júlíulykils (P. juliae) og laufeyjarlykils (P. vulgaris).