top of page
Pulmonaria mollis
Floslyfjurt
Munablómaætt
Boraginaceae
Hæð
meðalhá, 30 - 50 cm
Blómlitur
blóm skipta lit eftir því sem þau eldast, rauðbleikur - fjólblár - blár
Blómgun
maí - júní
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
rakur, vel framræstur, má vera kalkríkur
pH
hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerð
Heimkynni
Evrasía
Lyfjurtir, Pulmonaria, er ættkvísl í munablómaætt með heimkynni í Evrópu og vestanverðri Asíu. Þetta eru vorblómstrandi skógarplöntur sem eru mjög skuggþolnar.
Fjölgun:
Skipting að vori.
Sáning - sáð að hausti eða síðvetrar.
Fræ rétt hulið og haft úti fram að spírun.
Harðgerð og auðræktuð planta sem blómstrar ríkulega í maí.
bottom of page