Trollius x cultorum
Garðagullhnappur
Sóleyjaætt
Ranunculaceae
Hæð
hávaxinn, um 60 - 90 cm á hæð
Blómlitur
gulur eða appelsínugulur
Blómgun
júní - júlí
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
lífefnaríkur, rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerður
Heimkynni
garðablendingur
Glóhnappar, Trollius, er lítil ættkvísl um 30 tegunda í sóleyjaætt, Ranunculaceae, með heimkynni dreifð um nyrðra tempraða beltið með mestan tegundafjölda í Asíu. Þeir vaxa almennt í blautri leirmold í heimkynnum sínum en gera engar sérstakar jarðvegskröfur í görðum.
Fjölgun:
Skipting að vori eða hausti.
Sáning - sáð í september - nóvember.
Fræ rétt hulið og haft við stofuhita í 2 vikur og síðan sett út fram að spírun. Fræið þarf að frjósa, svo ekki er nóg að geyma það í kæli.
Hávaxin planta sem þarf almennt ekki stuðning. Harðgerð og auðræktuð. Garðagullhnappur er hópur blendingar gullhnapps, T. europaeus og annarra tegunda s.s. kínahnapps og asíuhnapps. Blómin geta verið í ýmsum litbrigðum frá fölgulum yfir í appelsínugulan.