Gulhjálmur hefur fallega fölgul blóm sem fara vel með öðrum pastellituðum blómum. Hann er frekar hávaxinn, en hefur sterka stöngla svo hann þarf ekki stuðning. Hann þolir skugga ágætlega en verður fallegri og hærri í loftinu ef hann fær sól part úr degi. Harðgerð og falleg planta sem ekkert þarf að hafa fyrir.
top of page
bottom of page