Ég ræktaði skúfburu af fræi fyrir allmörgum árum. Hún blómstraði einu sinni og svo týndi ég henni - svo ég var ekki komin með neina haldbæra reynslu af því hvernig hún þrífst hérlendis. Vonandi hafa aðrir meiri reynslu - og myndir - af þessari plöntu og eru tilbúnir að deila þeim með okkur hér.
top of page
bottom of page