Bikarlaukur er lágvaxinn og fíngerður. Blómin minna svolítið á blóm graslauks, en eru í einhliða sveip á bikarlauknum. Laufið er fíngert og minnir á gras. Hann er ágætlega harðgerður og hefur lifað af töluverða vanrækslu af minni hálfu. Hann þolir nokkurn skugga, sem er gott því hann hefur orðið svolítið undir í samkeppninni um að sjá til sólar í geymslubeðinu mínu. Það eru vonandi bjartari tímar framundan hjá honum í nýja fjölæringabeðinu mínu.
top of page
bottom of page