Mjallskógarlilja er lítil og nett skógarlilja með hvítum blómum. Laufið er fallega mynstrað. Hún vex hægt en hefur blómstrað nokkuð örugglega. Hún þarf sömu vaxtarskilyrði og aðrar skógarliljur, moltublandaðan jarðveg og hálfskugga.
top of page
bottom of page
Ég fékk þær allar sem rótarhnýði - ég held að það hafi verið í gegnum Garðyrkjufélagið þegar það var enn með laukalistana. Þær eru algjör djásn, bæði lauf og blóm.
Yndislegar þessar skógarliljur. Fást þær sem rótarhnýði eða hefurðu sáð fyrir/þeim Rannveig?