Glæsivöndur hefur lifað hjá mér í mörg ár, en hann hefur ekki blómstrað í eins mörg ár. Mér hefur ekki enn tekist að átta mig á því hvað veldur þegar hann lætur svo vel að blómstra. Þegar það gerist þá fyrirgefst honum svoldið nískan á blómin, því hann er stórkostlega fallegur á meðan hann stendur í blóma. Hann þarf sól, vel framræstan, kalkríkan jarðveg. Ég hef þó ekki verið dugleg með kalkið, kannski hefur skortur á blómum eitthvað með það að gera.
top of page
bottom of page
Það er svo langt síðan ég eignaðist hann að ég man ekki hvar ég keypti hann, en ég er nokkuð viss um að ég ræktaði hann ekki af fræi. Finnst líklegt að hann fáist í einhverri af gróðrarstöðvunum. Finnst jafnvel að ég hafi séð hann í Borg í fyrrasumar. Dýragras er dásamlega fallegt.
þessi blái litur er sá fallegasti blái sem finnst í görðum. Fallegri er þó liturinn á íslenska blóminu sömu ættar sem heitir bláin eða dýragras (Gentiana nivalis). Ég gerði einu sinni tilraun sem mistókst til að flytja það i Landið mitt. Ég vona að glæsivöndur verði fáanlegur á garðyrkjustöðvum.