Steinaslæða er jarðlæg, með smágerðu laufi og fallegum hvítum blómum sem eru sanseruð með bleikum æðum. Því miður er hún frekar viðkvæm, hún kann alls ekki að meta vetrarumhleypinga, svo hún varð ekki langlíf hjá mér. Það væri reynandi að geyma hana í reit yfir veturinn ef manni er mjög í mun að halda í hana. Hún þarf mjög vel framræstan jarðveg, blandaðan grófum sandi eða möl, helst í góðum halla svo vatn renni vel frá.
top of page
bottom of page