'Rajah' er falleg daglilja með appelsínurauðum blómum. Hún er álíka harðgerð og aðrar dagliljur sem ég hef prófað. Þær þrífast best í næringarríkum, moltublönduðum jarðvegi á frekar sólríkum stað. Þær hafa verið afskaplega tregar til að blómstra og er 'Raja' ein af fáum sem hafa blómstrað yfirleitt. Ekki oft, en hún hefur blómstrað. Það er meira en hægt er að segja um flestar hinar.
top of page
bottom of page