Bretinn George Russell á heiðurinn af Russel-blendingunum sem hann þróaði með kynblöndun á garðalúpínu (Lupinus polyphyllus), runnalúpínu (Lupinus arboreus) og mögulega fleiri tegundum. Hann vann að því í tvo áratugi að þróa þessa fagurlituðu blendinga sem eru nú vinsælar garðplöntur. Því miður verða þeir oft mjög skammlífir. Mér hefur gengið afskaplega illa með að fá þá til að lifa hjá mér. Þeir þurfa sólríkan stað og vel framræstan jarðveg sem er frekar í súrari kantinum. Þeir virðast þrífast betur fyrir norðan en hér fyrir sunnan, svo kannski er það vetrarbleytan sem fer með þá.
top of page
bottom of page
Russel lúpínur eru þessir svokölluðu 'Russel hybrids'. Eftir því sem ég kemst næst þá voru 'Russel hybrids' fyrstu skrautlúpínurnar. Skrautlúpína (L. x regalis) er hópur blendinga af garðalúpínu og runnalúpínu og Russel var víst fyrstur til að vinna að slíkum kynblöndunartilraunum. Síðan hafa komið fram aðrir skrautlúpínublendingar, ég er t.d. með 'Tutti Frutti' sem ég sáði í fyrra úti í köldum reit. Samkvæmt því sem ég hef lesið á netinu er 'Tutti Frutti' það besta sem hent hefur síðan 'Russel hybrids' komu fram. Ég hlakka til að sjá hvað verður úr þeim plöntum.
Ég held að skrautlúpínur séu yfirleitt frekar hávaxnar, en veit ekki hvort það er einhver munum á milli blendinga. Ég fann við þetta grúsk blendinga sem heita 'Galaxy series' sem eru ekki nema 30-60 cm á hæð, en mér sýnist þeir oftast taldir til garðalúpínu (L. polyphyllus). Það er þó alltaf svolítið huglægt þegar blendingar eiga í hlut hvar eigi að staðsetja þá.
Russel lúpínurnar eru mjög fallegar og til í ótal litaafbrigðum. Það hlýtur að vera erfitt að greina ýmsar aðrar skrautlúpinur frá þeim. Eru það sem kallaðir er ´Russel hybrids´ t.d. ekki afbrigði af Russel lúpínum sem öðrum hefur tekist að rækta? Veistu hvort Russel lúpínur eru hávaxnari en aðrar skrautlúpínur, og eru laufblöðin jafn mörg á þeim og öðrum skrautlúpínum?