Þyrnikló er falleg planta sem blómstrar ljósbleikum ertublómum í massavís, svo plantan verður þakin í blómum. Það mætti segja að þar leynist flagð undir fögru skinni,því plantan er alsett löngum, hvössum þyrnum svo hún er mjög ómeðfærileg og óskemmtilegt að rekast í hana. Ég átti hana í tvö sumur a.m.k., en henti henni svo í einhverju pirringskasti yfir því hvað hún væri illskeytt og mikil um sig. Verð að viðurkenna að þegar ég skoða myndirnar af henni, sé ég svolítið eftir því. Hún virtist vel harðgerð, en blómstraði frekar seint, í lok ágúst og fram að frosti.
top of page
bottom of page
Nei, plöntur sem eru að blómstra svona seint eiga ekki mikinn séns í svona sumrum. Held að moskusrósirnar hafi ekki náð að blómstra. Er reyndar lítið búin að vera úti í garði síðan í lok ágúst.
Já, lok ágúst, það er eiginlega full seint. Reyndar voru nokkrar tegundir í móanum sem blómstruðu alls ekkert í sumar.😢
Já, mig minnir að það hafi verið brúskur af dauðum, þyrnóttum stönglum, sem þurfti að klippa burt. Mig minnir að ég hafi hent henni að hausti til. Varð eitthvað ægilega pirruð á henni. Hún var ansi mikil um sig, mér hefur kannski fundist hún of plássfrek. Óttalega brussuleg, þyrniflækja.😁 Svo blómstraði hún ekki fyrr en í lok ágúst og fram að frosti. En blómin voru virkilega falleg og hún blómstraði mikið eins og sést á myndinni.
Falleg er hún, en maður á eiginlega ekki von á þyrnum á svona plöntum. Heldur hun þyrnigreinunum yfir veturinn?