Hlynsóley er hávaxin planta sem verður nokkuð mikil um sig. Laufið er stórt og minnir á hlynlauf, og er nafnið dregið af því. Blómin eru mjög mörg saman, hreinhvít, en knúpparnir eru rauðleitir. Hún byrjar að blómstra í lok maí og stendur í blóma fram í júlí. Harðgerð og auðræktuð, vex í sól eða hálfskugga í venjulegri garðmold. Kjöraðstæður eru næringarríkur, vel framræstur en rakur jarðvegur.
top of page
bottom of page