Hrokkið regnfang
Hrokkið regnfang hefur verið lengi í ræktun í görðum hér og eru til ýmsar útgáfur af nafninu. Þetta er harðgerð, nægjusöm fjölær planta sem er nánast ódrepandi. Það breiðir svolítið úr sér og getur orðið myndarleg breiða þar sem því líður vel. Laufið er ilmandi og fínskiptara en á venjulegu regnfangi. Blómin eru eingöngu samsett úr gulum pípukrónum. Plantan er eitruð.