Purpurasmári
Purpurasmári er meðalhá fjölær tegund sem blómstrar purpurarauðum blómum í ágúst. Hann þarf frekar sólríkan stað og vel framræstan jarðveg til að þrífast vel. Minn veslaðist upp af sólarleysi, þó hann hafi nú ekki verið í mjög miklum skugga. Mjög flott planta þar sem hann þrífst.