Garðagullhnappur
Ég keypti þetta fölgula afbrigði af garðagullhnappi fyrir mörgum árum síðan, en því fylgdi því miður ekkert yrkisheiti. Hann hefur þrifist vel og byrjar að blómstra heldur fyrr en guli garðagullhnappurinn minn. Hann vex við sömu skilyrði, frjóan, lífefnaríkan, frekar rakan jarðveg í sól eða hálfskugga.