Dvergdepla
Dvergdepla er yndisfögur og harðgerð steihæðaplanta sem verður þakin bláfjólubláum blómum í maí - júní. Ég hef átt hana lengi og hún lifir enn, þó hún fái ekki eins mikla sól og hún myndi vilja þar sem hún vex nú í brekkunni. Það kemur niður á blómguninni, en hún verður þéttari og blómstrar meira ef hún er gróðursett á sólríkum stað. Hún þarf frekar vel framræstan jarðveg.