Hvað segið þið um rósapöntunarlistann - ætlar einhver að panta?
Ég er í miklum vanda stödd - það eru svo margar rósir sem mig langar að prófa.
Ég er alveg ákveðin að panta:
Svo er vandinn að velja á milli þessara:
'Absolutely Fabulous' (Julia Child) - mér finnst nafnið á þessari svolítið heillandi, fyrir utan hvað hún er falleg. Zone 5b
'Blanche de Belgique' - fannst þessi áhugaverð því hún er sögð zone 3b, en svo fletti ég upp 'Maiden's Blush' og 'Alba Maxima' og þær eru það líka. Svo ég er ekki viss með hana, svo margt annað sem mig langar í.
'Kordes Robusta' - þessi á að vera zone 4b, mér finnst hún svolítið heillandi, en hrædd um að hún þyrfti að vera sunnan megin þar sem plássið er takmarkað. Svo á ég 'Champlain' (vonandi) og hún er zone 4a.
'Mon Amie Claire' - síblómstrandi þyrnirósarblendingur. Hún er sögð zone 4 (-34°C), blómin eiga að vera regnþolin og mikið ilmandi. Þetta hljómar allt saman afskaplega vel.
'Sachalin' - ígulrósarblendingur, blómin eru heillandi formfögur og falleg á litinn. En hún er sögð zone 6 (-24°C), sem vekur efasemdir um að hún gæti gert eitthvað á norðurhliðinni. Hún þarf líklegast gott skjól.
'Brenda Colvin' - klifurrós(flækjurós), spurning hvað hún getur gert hér. Reynsla Vilhjálms er athyglisverð og vekur löngun til að prófa. Hún er zone 6 (-24°C). Svo hún er líklegast að keppa um pláss sunnan megin. ('Maigold' er sögð zone 5-6 eftir heimildum, hún hefur reynst vel hjá mér, en þarf að vera við suðurvegginn). Hún lifði í geymslubeðinu hinu megin, en blómstraði ekki.
'Paul's Scarlet Climber' - klifurrós (flækjurós), sögð zone 6b. 'Flammentanz' er zone 5 og þarf suðurvegginn, svo það sama gildir örugglega um þessa. Líklegt að hún verði settleg beðrós hér.
'Graham Thomas' - ég er að spá hvort ég eigi að gefa Austin rósunum annan séns. Hef verið mjög óheppin með þær sem ég hef prófað. Þessi er zone 5b eins og 'Absolutely Fabulous' og gul eins og hún.
'Jude the Obscure' - önnur Austin rós, þessi er meira út í ferskjubleikt. Líka zone 5b.
'Kew Gardens' - Austin rós og moskusrósarblendingur. Zone 5. Mér finnst eitthvað heillandi við þessa rós.
'Princess Alexandra of Kent' - Austin rós sem á að vera zone 4. Á að ilma mikið og blómliturinn er æðislegur. Minnir mig á 'Aloha' sem ég átti í gamla garðinum og átti mjög erfitt uppdráttar.
'Sceptre'd Isle' - Austin rós sem á líka að vera zone 4. Og sögð þola kulda og regn. Það er kostur.
'Olds College' - Kanadísk rós sem á að vera zone 3. Mjög freistandi.
Semsagt mikill valkvíði í gangi hér.
Ég reikna fastlega með því að hún þurfi gott skjól. Ég ætla minni stað í dekurrósabeðinu. Harðgerðiskvarðinn ameríski segir samt ekki allt. Skv. Helpmefind er Duftwolke z7, z6 á annarri síðu. Þrátt fyrir það hefur hún gert góða hluti hjá mér á góðum stað.
Held að minningar um rósaræktina í rigningunni og kuldanum í fyrrasumar geri okkur kannski óþarflega varkárar í valinu núna. Svo held ég að það hafi talsvert að segja að planta rósunum djúpt.
Ég er lika búin að senda mína pöntun, 13 rósir. Ég veit alveg að ég er smá kli... 🥰
Jæja, þær urðu 10. Búin að ganga frá pöntuninni:
Absolutely Fabulous
Mon Amie Claire
Peter Boyd
Sachalin
Morden Fireglow
Prairie Magic
Brenda Colvin
Princess Alexandra of Kent
Scepter'd Isle
Olds College
Nú er bara að finna einhverja skapandi lausn á því hvernig ég kem þeim fyrir :)
Ég er með 9 á mínum lista eins og er. Ætla að reyna að fara ekki hærra. 😊
Ég er nokkrum sinnum búin að uppfæra/editera listann minn hér fyrir ofan, bætti núna áðan við David Thompson sem er bleik hybrid rugosa rós fyrir zone 2. Mér sást yfir hana áður. Nú er ég komin með 13 rósir sem ég er nokkuð ákveðin í að panra. Mer finnst þetta bara góð tala. Nú fer líka fresturinn til að senda inn pantanir að renna út en síðasti dagur er 28. febrúar. Var reyndar að kíkja á verðin á rósunum, kannski ég ætti að fækka þeim aðeins, er líklega komin í um 35 þúsund sem er kannski heldur mikið. Hvað ætlið þið að panta margar?
Já þetta eru margar sortir sem er erfitt að velja úr, sérstaklega ef mann langar í þær allar.. ég er búin að vera að skoða rósirnar i kvöld og skráði niður kandidata fyrir Jarphagann en það verða helst að vera mjög harðgerðar rósir. Núna er mér efst í huga
*Olds College z3 sem mér finnst mjög flott rós.
*Anne líkl. z3b er áhugaverð og
Kordes Robusta z4b rauð, einföld og regnþolinb.
*Nordens Dronning z2b kemur líka sterklega til greina og
*Prairie Princess z3b,
*Sceptre ´d Isle. Z4. Þolir kulda og regn.
*Morden fireglow z2b
Alberta Bouquet z3a.
Og nú er ég bara hálfnuð
*2 R. Lac Majeub. Ég held mig langi í 2.
*Marie Victorin z3b er spennandi og
*Prairie Magic z3b er sögð bæði kröftug og öflug.
Princess Alexandra of Kent z4b og
*The Mayflower z 3b
Canafa Blooms koma vel til greina.
*Maigold klifurrós held að hún sé z 5. Langar ap prófa
*David Tho,pson, hybrid rugosa z2
Hafið þið reynslu af Ydrerosen og Marie. Victorin?
Ég setti stjörnu við þær sem ég er að hugsa um að panta.
þetta eru 13 stk.